Hvernig panta ég?
Hægt er að panta vörur á netinu allan sólarhringinn, allt árið um kring. Afhendingarmöguleikar eru sendingar innanlands alla virka daga með Íslandspósti eða að viðskiptavinir sæki vöruna í verslun okkar á opnunartíma. Í ákveðnum tilfellum er einnig hægt að fá vöruna senda heim að dyrum innan 90 mínútna, samkvæmt einföldum skilyrðum. Einnig er alltaf hægt að koma í verslun okkar á opnunartíma og versla þar. Þeir sem panta á netinu geta fengið send afsláttarkóða reglulega sem gilda aðeins fyrir pantanir á netinu.
Leiðbeiningar
- Settu vöruna í körfuna með því að ýta á bláa körfuhnappinn.
- Til að fara í greiðsluferlið skaltu ýta á körfutáknið efst til hægri.
- Afsláttarkóða, ef þeir eru í boði, er hægt að virkja í greiðsluferlinu.
- Næsta skref er að fylla inn viðeigandi upplýsingar í eyðublaðið. Best er að fylla út allt formið.
- Veldu greiðslu- og afhendingarmáta samkvæmt þínum óskum.
- Áður en pöntun er staðfest þarftu að samþykkja skilmála.
- Ýttu á lokahnappinn til að staðfesta pöntunina.
- Pöntunin hefur verið móttekin þegar staðfestingarskilaboð birtast á skjánum.
Frí heimsending!
Við bjóðum upp á fría heimsendingu þegar pantað er fyrir 5.000 krónur eða meira í netverslun okkar.
Sendingarmöguleikar í boði:
Er í lagi að greiða fyrir vörurnar á netinu?
Já. Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugg og dulkóðuð samskipti við greiðslusíðu Teya. Hvorki við né vefsíðan okkar fáum kortaupplýsingar gefnar upp á neinum tímapunkti. Sama gildir um aðra greiðslumiðla, þar fara allar viðkvæmar greiðsluupplýsingar beint í gegnum öruggar tengingar milliliðalaust. Að auki er öll önnur umferð í gegnum vefsíðu okkar dulkóðuð með SSL samskiptum.
Ertu ósátt/ur við sendingarmöguleika okkar?
Við erum með samning við Póstinn og Dropp um vörudreifingu um landið allt. Ef þú ert ósátt/ur með valmöguleikana þá endilega hafðu samband og við reynum að mæta þínum kröfum eins og hægt er.
*Frí heimsending gildir aðeins á Íslandi. Gildir ekki um sendingar yfir 30kg.